This is an example of a HTML caption with a link.

Rollersigns afmörkun útisvæða

Rollersigns girðingar fyrir útiveitingar" Hvers vegna að nota Rollersigns®-rúlluskilti til að afmarka útisvæði fyrir veitingar?

Vegna þess að fyrsta áreiti skiptir öllu máli.

Rollersigns® rúlluskiltin gera viðskiptum þínum gagn með því að skapa afmarkað svæði um leið og þau má nota til að kynna vörur þínar og tilboð, sem laðar að nýja viðskiptavini. Frábær sölutækni, sem gerir þér kleift að koma þínum viðskiptum ótvírætt á framfæri og að standa feti framar en keppinautarnir. Fersk ný auglýsingaleið en um leið ódýr og hagkvæm.

Auðveld, ódýr og fljótleg aðferð við skipti á auglýsingaborða tryggir þér ávallt fersk skilaboð. Meðfærileg og auðveld uppsetning – Auðveld geymsla. .

.

Kerfisbundin afmörkun útisvæða með Rollersigns.
Ólíkt venjulegum búnaði til afmörkunar svæða utandyra gefur Rollersigns möguleika á að skapa setuaðstöðu utandyra, sem dregur viðskiptavini að þínu fyrirtæki. Með Rollerigns getur þú blandað saman hefðbundnum beltastoðum og stoðum með auglýsingahylkinu. Þegar auglýsingaborðinn er að fullu útdreginn blasir við beinskeytt auglýsing í stærðinni 1500mm á breidd og 800mm á hæð. Mjög einfalt er að skipta um auglýsingaborða. Hann er einfaldlega losaður frá og nýjum komið fyrir. Auglýsingaborða má endurnýja þe. setja upp aftur (eftir frágang hjá prentara) með 2 til 3 daga afgeiðslufresti.

Rok (og rigning)............ valda ekki vanda.
Margs konar aðrar girðingar og skilti til afmörkunar útisvæða eru oft til vandræða ef hvasst er úti - ekki Rollersigns®. Dragið auglýsinguna bara inn í hylkið og svæðið er óbreytt eftir sem áður. Ef hann er verulega hvass má þyngja stoðirnar, hverja fyrir sig með 11kg sérhönnuðum lóðum í fætur stoðanna, svo að þær hreyfist ekki úr stað.

Hafðu stjórn á setuaðstöðunni.
Með beltastoðunum og útdraganlegu beltunum má á auðveldan og fljótlegan máta breyta stærð útisvæðis, opna eða loka hluta þess, afmarka frátekin borð osfrv. Það léttir álagið af ágangi gesta og of dreifðri setu þeirra og dregur þannig úr vinnuálagi þeirra sem þjóna til borðs.

Skapaðu verðmætar viðbótartekjur.
Nýttu útisvæðið ekki bara til að auglýsa viðskipti þín heldur og til að skapa tekjur með því að kynna vörutegundir frá birgjum þínum. Við getum boðið þeim, sem ráða fyrir fjölförnum stöðum með margvíslega starfsemi, eins og td. verslunarmiðstöðvum, að gera tillögur að nýtingu svæða undir Rollersigns rúlluskilti og beltastoðir ásamt prentun og nauðsynlegum aukabúnaði, hvort sem óskað er eftir að kaupa stoðir eða auglýsingahólka eða fá búnaðinn leigðan. Leigjum gjarnan svæði sjálfir, í skemmri eða lengri tíma, hjá aðilum er það kjósa gegn því að annast sjálfir uppsetningu, viðhald og auglýsingar á Rollersigns rúlluskiltunum. Hafðu samband við hentugleika og við ræðum málin og möguleikana.




 

 

 






 Heim | Hólkurinn | Afmörkun | Vöruval | Miðlun | Fyrirtækið | Viðskiptavinir | Hafið samband | Myndasafn | Verslun